18 September 2020 09:03

Skráð voru 773 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í ágúst og fækkaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir ágúst 2020.

Í ágústmánuð bárust álíka margar tilkynningar um innbrot og í júlí. Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði hins vegar töluvert á milli mánaða. Vert er þó að taka fram að það sem af er ári hafa borist um sex prósent færri tilkynningar um þjófnaði en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Í ágúst voru skráðar 129 tilkynningar um eignaspjöll og fjölgar þessum tilkynningum á milli mánaða. Tilkynningum um nytjastuld ökutækja fjölgaði einnig á milli mánaða og fór úr 18 tilkynningum í júlí í 29 tilkynningar í ágúst.

Skráðum ofbeldisbrotum fækkaði töluvert á milli mánaða og hafa ekki borist jafn fáar tilkynningar síðan í desember 2019. Tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi eða hótað um ofbeldi fækkaði á milli mánaða. Álíka margar tilkynningar bárumst um heimilisofbeldi og júlí. Það sem af er ári hafa borist um 14 prósent fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi en bárust að meðaltali á sama tímabili á árunum 2017-2019.

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust átta tilkynningar um kynferðisbrot sem áttu sér stað í ágúst. Ekki hafa borist jafn fáar tilkynningar um kynferðisbrot sem áttu sér stað í tilteknum mánuði síðan í september 2018.

Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði töluvert á milli mánaða og voru engin stórfelld fíkniefnabrot skráð á höfuðborgarsvæðinu í ágúst. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fækkaði á milli mánaða en tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fjölgaði.

Í ágúst voru skráð 742 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum) og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða. Það sem af er ári hafa verið skráð um 16 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.