21 Nóvember 2019 17:25

Skráð voru 852 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í október og fækkaði þessum brotum nokkuð á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir október 2019.

Skráðum innbrotum fjölgaði á milli mánaða en þar af var mesta fjölgunin á skráðum innbrotum í fyrirtæki og stofnanir. Þá hefur skráðum innbrotum í ökutæki fækkað um rúm 25% á milli mánaða.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fjölgað töluvert á milli mánaða líkt og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í október voru skráð 1.018 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Á milli mánaða fjölgaði umferðalagabrotum um tæp 15%. Vert er að taka fram að skráð umferðarlagabrot voru innan útreiknaðra marka fyrir síðustu 12 mánuði á undan.

Skráðum ofbeldisbrotum fækkaði töluvert á milli mánaða og á fækkunin við um bæði minniháttar og meiriháttar líkamsárásir. Það sem af er ári hafa borist um sex prósent færri tilkynningar um ofbeldisbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.