25 Apríl 2022 15:30

Skráð voru 696 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í mars og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir mars 2022.

Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði töluvert á milli mánaða sem og tilkynningar um um innbrot. Það sem af er ári hafa borist um átta prósent færri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Alls bárust 122 tilkynningar um ofbeldisbrot í mars og fjölgaði þessum tilkynningum á milli mánaða. Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgaði einnig á milli mánaða og fóru úr 52 tilkynningum í febrúar í 66 tilkynningar í mars. Það sem af er ári hafa borist um fjögur prósent færri tilkynningar samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan.

Alls bárust sjö beiðnir um leit að börnum og ungmennum í mars og fækkaði þessum beiðnum örlítið á milli mánaða.

Tilkynningum um eignaspjöll fjölgaði á milli mánaða en tilkynningar um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum fækkaði.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða og voru þrjú stórfelld fíkniefnabrot skráð í mars. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fjölgaði.

Í mars voru skráð 673 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 29 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.