18 Maí 2022 10:57

Skráð voru 674 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í apríl og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir apríl 2022.

Tilkynningum um þjófnaði fækkaði á milli mánaða á meðan tilkynningar um um innbrot voru álíka margar og í mars. Það sem af er ári hafa borist um tíu prósent færri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Alls bárust 130 tilkynningar um ofbeldisbrot í apríl og fjölgaði þessum tilkynningum á milli mánaða. Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgaði einnig á milli mánaða og fóru úr 66 tilkynningum í mars í 75 tilkynningar í apríl. Það sem af er ári hafa borist um eitt prósent færri tilkynningar samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan. Alls bárust átta beiðnir um leit að börnum og ungmennum í apríl.

Tilkynningum um eignaspjöll fækkaði á milli mánaða sem og tilkynningum um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum fækkaði.

Álíka mörg fíkniefnabrot voru skráð í apríl og mars og voru fjögur stórfelld fíkniefnabrot skráð í apríl. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði örlítið á milli mánaða sem og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fjölgaði.

Í mars voru skráð 776 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 23 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.