20 Júní 2022 15:05

Skráð voru 716 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í maí og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir maí 2022.

Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði á milli mánaða á meðan tilkynningar um innbrot fækkaði. Það sem af er ári hafa borist um tíu prósent færri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Alls bárust 117 tilkynningar um ofbeldisbrot í maí og fækkaði þessum tilkynningum á milli mánaða. Tilkynningum um heimilisofbeldi fækkaði á milli mánaða og fóru úr 75 tilkynningum í apríl í 57 tilkynningar í maí. Það sem af er ári hafa borist um þrjú prósent færri tilkynningar samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan. Alls bárust 13 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í apríl.

Tilkynningum um eignaspjöll fjölgaði örlítið á milli mánaða á meðan tilkynningum um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum fækkaði.

Töluvert fleiri fíkniefnabrot voru skráð í maí en í apríl og voru 11 stórfelld fíkniefnabrot skráð í maí. Aukningin má rekja til aðgerða lögreglu í tveimur umfangsmiklum rannsóknum á amfetamínframleiðslu en blaðamannafundur var haldinn 9.júní síðastliðinn í kjölfar aðgerðanna. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í maí voru skráð 964 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Ekki hafa verið skráð jafn mörg umferðarlagabrot síðan í maí 2020. Það sem af er ári hafa verið skráð um 18 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.