4 Nóvember 2016 14:33

Afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir septembermánuð 2016 hefur verið birt. Í skýrslunni eru teknar saman upplýsingar um helstu afbrot sem hafa verið tilkynnt til lögreglu. Fjallað er um þróunina á síðustu 13 mánuðum og breytingar metnar út frá staðalfrávikum. Auk þess sem tölur það sem af er ári bornar saman við sama tímabil síðustu þriggja ára.

 Í september var skráð 691 tilkynning um hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu, sem er fjölgun á milli mánaða. Tilkynningarnar eru þó innan marka miðað við þróun síðastliðna sex og síðastliðna 12 mánuði á undan. Flestir brota- og verkefnaflokkar voru innan ætlaðra marka miðað við þróun síðustu sex og síðustu 12 mánuði á undan. Fíkniefnabrotum fjölgaði þó miðað við áður nefnd mörk. Skráð voru um 24% fleiri fíkniefnabrot í september samanborið við meðalfjölda síðustu 12 mánuði á undan. Brot tengd akstri undir áhrifum ávana- og fíkniefna sem og ölvun við akstur fjölgaði einnig. Þá fjölgaði slysum í september miðað við ætluð mörk síðustu sex og síðustu 12 mánuði á undan. Skráð voru 45 umferðarlsys í september en 33 í ágúst. Skráðum slysum hefur fjölgað um 19 prósent miðað við meðaltal síðustu 12 mánaða á undan.