29 Janúar 2010 12:00

Mikið er um ótryggð og óskoðuð ökutæki á höfuðborgarsvæðinu en lögreglan hvetur eigendur og umráðamenn þeirra til að gera þar bragarbót á. Það sem af er vikunni hafa skráningarnúmer verið fjarlægð af tæplega 100 ökutækjum sem uppfylltu ekki ákvæði um skoðun eða voru ótryggð. Lögreglan heldur eftirlitinu áfram og hvetur ökumenn til að passa upp á þetta svo ekki þurfi að koma til fyrrnefndra aðgerða.