23 Janúar 2012 12:00

Um helgina voru skráningarnúmer fjarlægð af eitt hundrað og sextíu ökutækjum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu, en þau voru ýmist ótryggð eða óskoðuð og jafnvel hvorutveggja. Mjög mikið er um ótryggð og óskoðuð ökutæki í umdæminu en lögreglan hvetur eigendur og umráðamenn þeirra til að gera þar bragarbót á. Undanfarið hafa skráningarnúmer verið fjarlægð af fjölmörgum ökutækjum sem uppfylltu ekki ákvæði um skoðun eða voru ótryggð. Lögreglan heldur eftirlitinu áfram og hvetur ökumenn til að passa upp á þetta svo ekki þurfi að koma til fyrrnefndra aðgerða.