10 Janúar 2011 12:00

Töluvert er um ótryggð og óskoðuð ökutæki á höfuðborgarsvæðinu en lögreglan hvetur eigendur og umráðamenn þeirra til að gera þar bragarbót á. Undanfarið hafa skráningarnúmer verið fjarlægð af mörgum ökutækjum sem uppfylltu ekki ákvæði um skoðun eða voru ótryggð. Lögreglan heldur eftirlitinu áfram og hvetur ökumenn til að passa upp á þetta svo ekki þurfi að koma til fyrrnefndra aðgerða.

Um helgina voru skráningarnúmer fjarlægð af fjörutíu ökutækjum sem voru ýmist ótryggð eða óskoðuð, og jafnvel hvorutveggja, en trassaskapur sumra í þessum efnum er með ólíkindum.