28 Maí 2008 12:00

Að undanförnu hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fjarlægt skráningarnúmer ökutækja sem ekki uppfylla ákvæði um skoðun eða eru ótryggð. Eftirlitinu verður framhaldið enda er töluvert um ótryggð og óskoðuð ökutæki í umdæminu. Lögreglan hvetur jafnframt eigendur og umráðamenn þeirra til að gera þar bragarbót á svo ekki þurfi að koma til fyrrnefndra aðgerða.

Í gær voru skráningarnúmer fjarlægð af nálægt tuttugum ökutækjum af áðurgreindum ástæðum.