13 Október 2009 12:00

Mikið er um ótryggð og óskoðuð ökutæki á höfuðborgarsvæðinu en lögreglan hvetur eigendur og umráðamenn þeirra til að gera þar bragarbót á. Undanfarið hafa skráningarnúmer verið fjarlægð af mörgum ökutækjum sem uppfylltu ekki ákvæði um skoðun eða voru ótryggð. Lögreglan heldur eftirlitinu áfram og hvetur ökumenn til að passa upp á þetta svo ekki þurfi að koma til fyrrnefndra aðgerða.