14 Mars 2019 14:19

Undanfarið hafa skráningarnúmer verið fjarlægð af tugum ökutækja víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu, en þau voru ýmist ótryggð eða óskoðuð og jafnvel hvorutveggja. Mjög mikið er um ótryggð og óskoðuð ökutæki í umdæminu en lögreglan hvetur eigendur og umráðamenn þeirra til að gera þar bragarbót á. Lögreglan heldur eftirlitinu áfram og ítrekar að ökumenn hafi þetta í lagi svo ekki þurfi að koma til fyrrnefndra aðgerða, en þeim fylgja töluverð óþægindi fyrir ökumennina sjálfa.