7 Febrúar 2008 12:00

Undanfarna daga hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fjarlægt skráningarnúmer ökutækja sem ekki uppfylla ákvæði um skoðun eða eru ótryggð. Eftirlitinu verður framhaldið enda er töluvert um ótryggð og óskoðuð ökutæki í umdæminu. Lögreglan hvetur jafnframt eigendur og umráðamenn þeirra til að gera þar bragarbót á svo ekki þurfi að koma til fyrrnefndra aðgerða. Sem fyrr heldur lögreglan úti reglulega eftirliti með ölvunarakstri en á morgun, föstudag, mega ökumenn búast við að verða stöðvaðir vegna þessa víðsvegar í umdæminu.