17 Júlí 2007 12:00

Karlmaður á þrítugsaldri var fluttur á slysadeild eftir óhapp á trampólíni um helgina. Hann fékk slæma byltu og féll í yfirlið í skamma stund en maðurinn fékk einnig skurð í andlitið. Málsatvik voru þau að ungt fólk var að skemmta sér í úthverfi á höfuðborgarsvæðinu mjög snemma morguns og var áfengi haft um hönd. Svo virðist sem einhver í samkvæminu hafi fengið þá hugmynd að spreyta sig á trampólíni en það getur verið varasamt ef öll skilningarvitin eru ekki í lagi.