15 Júní 2018 14:18

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við óprúttnum aðilum sem hafa stolið greiðslukortum og komist yfir PIN-númer, en þrjú slík tilvik hafa verið tilkynnt til lögreglu. Brotaþolar eiga það sameiginlegt að vera fullorðnar konar, komnar á eftirlaunaaldur og rúmlega það. Í einu tilvikanna var greiðslukorti stolið úr bifreið eldri konu, sem hafði skömmu áður tekið út peninga í hraðbanka í Kópavogi. Talið er líklegt að þjófarnir hafa fylgst með konunni slá inn PIN-númerið, en þeir gáfu sig síðan á tal við hana þegar í bifreiðina var komið og þóttust vera að spyrja til vegar. Næst þegar konan ætlaði að nota greiðslukortið uppgötvaði hún að það var horfið og gerði þá strax ráðstafanir til að láta loka því, en í ljós kom að í millitíðinni höfðu peningar verið teknir út af reikningi konunnar. Svipað atvik átti sér stað við hraðabanka í Reykjavík, en þar varð eldri kona fyrir barðinu á þjófunum, sem náðu þar líka að taka út peninga af reikningi viðkomandi. Loks er það samskonar mál úr verslun í Reykjavík þar sem þrjótarnir gáfu sig á tal við eldri konu, sem var að borga fyrir vörur við afgreiðslukassann. Þeir náðu að komast yfir PIN-númer konunnar og með það greiðslukortið hennar, sem þeir stálu, var eftirleikurinn auðveldur, en nokkrir tugir þúsunda voru teknir út af reikningi konunnar. Líklegt er talið að um sömu þjófana sé að ræða í öllum tilfellum, en að sögn brotaþola voru þeir tveir á ferðinni, kona og karl, og töluðu erlent tungumál.

Lögreglan minnir fólk á að gæta að sér þegar PIN-númer eru slegin inn og eins að upplýsingar um PIN-númer séu ekki geymdar með greiðslukortum.