18 September 2007 12:00

Piltur á grunnskólaaldri handleggsbrotnaði þegar hann féll af þaki fyrirtækis í austurborginni í gær. Talið er að pilturinn hafi verið að príla með fyrrgreindum afleiðingum. Í Kópavogi var annar strákur að ganga ofan á girðingu og missti jafnvægið. Hann lenti illa og var sömuleiðis fluttur á slysadeild en ekki er vitað frekar um meiðsli hans. Þá var karli á miðjum aldri einnig komið undir læknishendur en sá varð fyrir því óláni við vinnu sína, að á honum lenti stálplata. Við það slasaðist viðkomandi á fæti.