6 Desember 2006 12:00

Þrír krakkar voru fluttir á slysadeild eftir óhöpp í Reykjavík í gær. Fyrst datt 9 ára stúlka á hálkubletti við einn af grunnskólum borgarinnar í gærmorgun og síðan féll unglingsstúlka á skautasvelli síðdegis en hún fékk skurð á höfuðið. Þá slasaðist 12 ára strákur þegar hann missti stjórn á hjólinu sínu. Hann fékk stýrið í magann og hlaut af því einhverja áverka.

Tvær unglingsstúlkur voru teknar fyrir þjófnað í verslunarmiðstöð í gær en haft var samband við forráðamenn þeirra. Skófatnaði var stolið úr fjölbýlishúsi í austurbænum en þar liggja ákveðnir aðilar undir grun. Geislaspilara var stolið úr bíl í miðbænum og annars staðar í borginni hurfu nokkrir smáhlutir úr öðrum bíl.

Þá var 17 ára piltur tekinn fyrir sóðaskap. Sá henti gosdós út um bílglugga á gatnamótum í miðbænum. Með því braut hann 8. grein lögreglusamþykktar Reykjavíkurborgar en í henni segir m.a.; Enginn má fleygja rusli á almannafæri nema í þar til gerð ílát. Pilturinn á nú sekt yfir höfði sér.