28 Desember 2018 17:23

Í dag hefur verið unnið að rannsókn umferðarslyss sem varð við Núpsvötn í gær. Farið var á vettvang með fulltrúa Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Þá var hafist handa við bíltæknirannsókn á bílnum sem fólkið var á og miðast hún við að leiða í ljós hvort eitthvað það sem finnst við skoðun á bifreiðinni hafi átt þátt í eða valdið slysinu. Þá verður sérstaklega kannað hvort og hvaða öryggisbúnaður og / eða öryggisbelti var í notkun í bílnum en barnabílstóll var laus í honum þegar að var komið og ungbarnið, sem lést, ekki í honum þegar lögregla kom að.    Lesið var úr aksturstölvu bílsins í morgun en það er hluti af því að afla upplýsinga sem nýtast til þess að reikna út hraða ökutækisins þegar slysið varð. Auk bílsins var hluti brúarhandriðsins flutt á Selfoss til frekari rannsóknar.   Fyrir liggja niðurstöður úr rannsókn blóðsýna úr ökumanni en slíkt er alltaf gert í jafn alvarlegum slysum og þessu.   Niðurstaðan staðfestir að hann var ekki ölvaður við aksturinn.

Réttarkrufning á líkum hinna látnu mun fara fram þann 2. janúar n.k.

Aflað hefur verið upplýsinga hjá þeim vitnum sem hafa gefið sig fram og fyrir liggur að taka skýrslu af ökumanni og farþega þegar ástand þeirra leyfir slíkt.