3 Desember 2013 12:00

Umferðarslysum hefur fjölgað nokkuð það sem af er ári miðað við sama tímabil í fyrra. Það er óásættanlegt.  Lögregla bendir á að slys má í flestum tilvikum rekja til óaðgæslu eða glannaskaps vegfarenda. Á því þurfa þeir sjálfir að taka og tryggja þannig að þeir valdi ekki öðrum þjáningu eða skaða sem aldrei verður bættur.

Lögregla bendir í því sambandi ökumönnum á þá hættu sem stafar af of miklum hraða og of stuttu bili milli bíla í þéttri umferð á morgnana og á kvöldin þegar skyggni er á stundum lítið og götur hálar. Með því að gæta að þessu tvennu, hraða og bili milli bíla, geta ökumenn komið í veg fyrir aftanákeyrslur sem eru orsakavaldur allt of margra slysa.

Þá bendir lögregla ökumönnum á að gæta að ökuhraða hvar sem gangandi vegfarenda getur verið von. Of oft hefur það gerst á þessu ári að ekið er á gangandi eða hjólandi vegfarendur í íbúðahverfum, jafnvel á leið yfir gangbraut. Því verður að linna. Aðrir vegfarendur, gangandi og hjólandi, eru einnig hvattir til þess að huga að sínu öryggi með því að vera sýnilegir í umferðinni, klæðast skærum fatnaði, nota endurskinsmerki eða ljós í svartasta skammdeginu og tryggja þannig að ökumenn verði þeirra varir í tíma.

Það er trú lögreglu að umferðaröryggi náist best fram með breyttu og bættu viðhorfi vegfarenda til umferðar. Að þeir finni til ábyrgðar sinnar, hagi sér í samræmi við hana og krefjist þess sama af öðrum.

Stöndum undir ábyrgð okkar í umferðinni og gerum þá daga slysalausa sem eftir eru af árinu.