7 Júní 2012 12:00

Lögreglan fann tvo kornsnáka við húsleit í íbúð í austurborginni í gær. Í málum sem þessum eru dýrin tekin í vörslu lögreglu og þau síðan flutt á dýraspítala þar sem gerðar eru viðeigandi ráðstafanir. Í íbúðinni var einnig lagt hald á fíkniefni og peninga, sem taldir eru tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar.