3 Júlí 2009 12:00

Það var heldur óvenjuleg sjón sem blasti við lögreglumönnum þegar þeir komu í íbúð í fjölbýlishúsi á höfuðborgarsvæðinu á dögunum. Innandyra voru fimm snákar, fjórar köngulær, kakkalakki og ýmis önnur skordýr sem við kunnum ekki að nefna. Þar var einnig að finna eðlu, mýs og hamstra. Fátt var um svör þegar húsráðandi var spurður um dýrahaldið. Dýrin voru flutt að Keldum þar sem gerðar voru viðeigandi ráðstafanir. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem voru teknar á vettvangi.