25 Október 2011 12:00

Lögreglumenn geta átt von á ýmsu í starfi sínu eins og glögglega kom í ljós í Breiðholti á dögunum. Í húsi í hverfinu reyndist vera snákur en dýrið var tekið í vörslu lögreglu og síðan flutt að Keldum þar sem gerðar voru viðeigandi ráðstafanir.