1 September 2010 12:00

Lögreglumenn geta átt von á ýmsu í starfi sínu eins og glögglega kom í ljós í Breiðholti á dögunum. Í húsi í hverfinu reyndist vera snákur en dýrið var tekið í vörslu lögreglu og síðan flutt að Keldum þar sem gerðar voru viðeigandi ráðstafanir. Um var að ræða svokallaðan kornsnák og var hann um einn metri að lengd.

Kornsnákur sem fannst í Breiðholti.