30 Janúar 2009 12:00

Töluvert er um að snjóbrettum sé stolið þessa dagana. Að undanförnu hafa lögreglu borist margar slíkar tilkynningar, flestar ef ekki allar úr Bláfjöllum. Þar hafa óprúttnir aðilar verið á ferð en þeir virðast nota tækifærið á meðan snjóbrettafólkið hvílir lúin bein og borðar nestið sitt. Allmörg snjóbretti hafa horfið með þessum hætti og því er full ástæða til að vera betur á varðbergi. Iðkendur snjóbrettaíþróttarinnar eru einkum börn og unglingar og vonbrigði þeirra þegar snjóbrettum er stolið, eru skiljanlega mjög mikil. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að brýna fyrir börnum sínum mikilvægi þess að passa vel upp á hlutina sína. Hinir sömu eru jafnframt beðnir um að láta lögreglu vita ef vart verður við illa fengin snjóbretti.