28 Nóvember 2007 12:00

Í nótt voru höfð afskipti af þremur piltum sem höfðu brotið flöskur í Hlíðunum. Þegar leitað var eftir skýringum á athæfi þeirra var fátt um svör en á þeim mátti helst skilja að þetta hefði verið gert í gamni. Félögunum var gert grein fyrir að svona sóðaskapur væri ólíðandi og voru þeir látnir fjarlægja öll glerbrotin eftir sig. Þegar allt var orðið hreint á ný var þeim leyft að halda ferð sinni áfram og vonandi hafa þeir lært sína lexíu.

Um hádegisbil var unglingspiltur staðinn að veggjakroti í strætisvagni í Háaleitishverfi og var lagt hald á tvo úðabrúsa og tússpenna sem hann var með í fórum sínum. Kauði var líka með myndavél meðferðis og hafði tekið myndir af öðru veggjakroti. Ekki er ljóst hvort hann hugðist mynda veggjakrotið sitt í strætisvagninum.

Síðdegis hafði lögreglan afskipti af nokkrum krökkum í Kópavogi sem voru að kasta snjóboltum í bíla. Slíkt er stórhættulegt og getur haft mjög alvarlegar afleiðingar. Litlu mátti muna að einn ökumannanna sem fyrir þessu varð missti stjórn á bílnum sínum. Framrúðan í bíl hans brotnaði og því er um nokkurt tjón að ræða. Haft var samband við foreldra krakkana og farið yfir málið sem er litið alvarlegum augum.