6 Ágúst 2008 12:00

Karl á fertugsaldri var handtekinn í miðborginni aðfaranótt laugardags. Hann sat í ökumannssæti bifreiðar á gatnamótum Hafnarstrætis og Lækjargötu en bíllinn færðist ekki úr stað þegar grænt ljós kviknaði á umferðarljósum fyrir hans akstursstefnu. Það vakti grunsemdir vegfarenda sem kölluðu til lögreglu. Þegar að var komið reyndist maðurinn steinsofandi en bíllinn var í gangi.  Hinn þreytti ökumaður, sem var einn í bílnum, var vakinn og færður á lögreglustöð en hann reyndist jafnframt vera ölvaður.

Aðfaranótt mánudags var lögreglan aftur kölluð til þegar annar þreyttur ökumaður, sömuleiðis karlmaður en nokkuð eldri, hætti sér út í umferðina. Ökuferð hans lauk í Vogahverfinu en þar lenti maðurinn í umferðaróhappi. Lítið var um svör þegar ökumaðurinn, sem var ódrukkinn, var spurður um óhappið en hann var klæddur í náttföt og hefði því betur verið heima í rúminu heldur en úti að aka.