8 September 2011 12:00

Betur fór en á horfðist þegar bíll valt á Suðurlandsvegi um miðjan dag í gær. Ökumanninn sakaði ekki, eftir því sem best er vitað, en undir stýri var kona á sextugsaldri en talið er að hún hafi sofnað við aksturinn. Óhappið minnir okkur á mikilvægi þess að ökumenn hafi einbeitinguna í lagi. Sæki að þeim syfja eða þreyta er nauðsynlegt að gera hlé á akstrinum og halda síðan ferðinni áfram þegar viðkomandi ökumaður hefur náð að hvílast. Sé það ekki gert kann að fara mjög illa.

Frá Suðurlandsvegi.