26 Október 2010 12:00

Betur fór en á horfðist þegar jeppa var ekið á ljósastaur við Reykjanesbraut í Garðabæ í gærmorgun. Ökumanninn sakaði ekki en undir stýri var kona um fertugt og mun hún hafa sofnað við aksturinn. Bíllinn skemmdist hinsvegar allnokkuð eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.