24 Janúar 2007 12:00

Lögreglumenn verða að vera við öllu búnir enda verkefnin margvísleg og stundum óvenjuleg. Einu slíku útkalli var sinnt í nótt en þá var farið í íbúð í Reykjavík. Húsráðandi hafði óskað aðstoðar sökum þess að undarleg hljóð bárust frá baðherberginu.

Þegar að var gáð reyndust hljóðin kom frá rafmagnsrakvél sem var í gangi inni í skáp. Lögreglumaður á vettvangi slökkti á vélinni og að því búnu lagðist húsráðandi aftur til svefns, áhyggjulaus.