20 Mars 2012 12:00

Tilkynnt var um sprengingu í Bankastræti í Reykjavík klukkan 4.46 í morgun. Þegar lögreglan kom á vettvang mátti sjá skemmdir á rúðu skartgripaverslunar í Bankastræti 12. Einhverskonar sprengja hafði verið límd á rúðuna, sem brotnaði en þó ekki í gegn. Engu var stolið úr versluninni. Tveir menn sáust á vettvangi í þann mund sem sprengjan sprakk. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.