1 Febrúar 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að karlmanni og hvítri sendibifreið í tengslum við rannsókn hennar á sprengju sem fannst neðst á Hverfisgötu í Reykjavík í gærmorgun. Maðurinn er talinn hafa komið með sprengjuna í miðborgina. Hann er jafnframt talinn hafa ekið umræddum bíl sem er af gerðinni Renault Kangoo. Myndir af manninum og bílnum má sjá hér að neðan.

Fjölmargar ábendingar hafa borist lögreglu eftir að tilkynning hennar birtist í fjölmiðlum síðdegis í gær og úr þeim er unnið. Maður sem var á biðstöð fyrir strætisvagna neðst á Hverfisgötu hefur jafnframt gefið sig fram. Rannsókn málsins er áfram í fullum gangi og sem fyrr er óskað eftir upplýsingum um fólk eða ökutæki á þessu svæði á tímabilinu 6.30-7 í gærmorgun. Þeim má koma á framfæri í síma 444-1000 en upplýsingar má einnig senda í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is Sömuleiðis er hægt að koma nafnlausum ábendingum á framfæri í síma 800-5005.

Samskonar bíll og leitað er að.