10 Febrúar 2012 12:00

Karl á áttræðisaldri er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, grunaður um aðild að sprengjumálinu svokallaða. Maðurinn var handtekinn í dag en lögregla hefur jafnframt lagt hald á ýmsan búnað sem tengist áðurnefndu máli. Þá er bíll mannsins sömuleiðis í vörslu lögreglu en ökutækið er sömu gerðar og lýst var eftir. Tveir aðrir menn voru handteknir í tengslum við málið í dag en þeim hefur nú báðum verið sleppt úr haldi. Fjölmargir hafa verið kallaðir til skýrslutöku undanfarna daga en unnið hefur verið sleitulaust að málinu frá því að það kom upp á þriðjudaginn í síðustu viku enda er það litið mjög alvarlegum augum hjá lögreglu.

Það var þriðjudaginn 31. janúar sem sprengja fannst neðst við Hverfisgötu í Reykjavík. Staðfest er að sprengjan sprakk fyrir klukkan sjö að morgni þennan sama dag, steinsnar frá stjórnarráðinu í Lækjargötu. Engan sakaði og sömuleiðis urðu engar skemmdir. Sprengjan var ekki öflug en hætta var þó á ferðum í nánasta umhverfi þar sem hún sprakk. Loka þurfti af hluta Hverfisgötunnar, eða frá Lækjargötu að Ingólfsstræti, eftir að tilkynning barst um torkennilegan hlut sem síðan reyndist vera leifar af sprengju.  Sprengjusveitir lögreglu og Landhelgisgæslunnar voru kallaðar til og gerðu þær viðeigandi ráðstafanir. 

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.