11 Febrúar 2012 12:00

Karl á áttræðisaldri hefur játað aðild sína að sprengjumálinu svokallaða. Hann mun hafa verið einn að verki og liggja aðrir ekki undir grun en málið telst upplýst og hefur manninum verið sleppt úr haldi. Tilgangur mannsins var ekki að valda skaða en hann vildi koma áveðnum skilaboðum á framfæri til stjórnvalda. Sprengjan var ekki til þess fallin að valda eyðileggingu eða hættu, enda stóð maðurinn við hlið hennar er hún sprakk.

Eins og fram hefur komið var maðurinn handtekinn í gær en við húsleit á heimili hans var lagt hald á ýmsan búnað sem tengist áðurnefndu máli. Þá var bíll mannsins sömuleiðis tekinn í vörslu lögreglu en ökutækið er sömu gerðar og lýst var eftir í fjölmiðlum. Fjölmargir voru kallaðir til skýrslutöku í þágu rannsóknarinnar en unnið var sleitulaust að málinu frá því að það kom upp á þriðjudaginn í síðustu viku enda var það litið mjög alvarlegum augum hjá lögreglu.

Það var þriðjudaginn 31. janúar sem sprengja fannst neðst við Hverfisgötu í Reykjavík. Staðfest er að sprengjan sprakk fyrir klukkan sjö að morgni þennan sama dag, steinsnar frá stjórnarráðinu í Lækjargötu. Engan sakaði og sömuleiðis urðu engar skemmdir. Sprengjan var ekki öflug en hætta var þó á ferðum í nánasta umhverfi þar sem hún sprakk. Loka þurfti af hluta Hverfisgötunnar, eða frá Lækjargötu að Ingólfsstræti, eftir að tilkynning barst um torkennilegan hlut sem síðan reyndist vera leifar af sprengju.  Sprengjusveitir lögreglu og Landhelgisgæslunnar voru kallaðar til og gerðu þær viðeigandi ráðstafanir.