24 Mars 2011 12:00

Í febrúar fylgdist lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sérstaklega með stefnuljósanotkun ökumanna. Höfð voru afskipti af 550 ökumönnum sem gáfu ekki stefnuljós þegar við átti. Í mars hefur lögreglan svo lagt ríka áherslu á eftirlit við ljósastýrð gatnamót í kjölfar ábendinga frá vegfarendum um ökumenn sem aka gegn rauðu ljósi. Ennfremur er fylgst með því að stöðvunarskylda á gatnamót sé virt.