14 Desember 2010 12:00

Mikið er um stöðubrot í Reykjavík en um helgina hafði lögreglan afskipti af hátt í fimm hundruð ökutækjum vegna þessa, jafnt á miðborgarsvæðinu sem annars staðar. Þannig var bílum t.d. lagt ólöglega við Laugardalshöll og Grafarvogskirkju en á báðum stöðum voru næg bílastæði í aðeins 2-3 mínútna göngufæri frá áðurnefndum stöðum. Þá ber sömuleiðis nokkuð á því að fullfrískir einstaklingar nýti sér stæði sem eru sérmerkt fötluðum. Fullorðin, fötluð kona sem býr á miðborgarsvæðinu þurfti t.d. að hringja í lögregluna í tvígang um helgina en í bæði skiptin var það vegna óforskammaðra bílstjóra sem lögðu í einkastæðið hennar þrátt fyrir að það sé kyrfilega merkt með viðeigandi hætti.

Sem fyrr hvetur lögreglan ökumenn til að leggja löglega, m.a. til að þeir komist hjá útgjöldum en nú er 5000 kr. sekt vegna stöðubrots en gjaldið rennur í Bílastæðasjóð.

Bílastæði við Hverafold, steinsnar frá Grafarvogskirkju, voru illa nýtt þegar fjölsóttir tónleikar fóru fram í kirkjunni.