27 Mars 2012 12:00

Mikið er um stöðubrot í Reykjavík en um helgina hafði lögreglan afskipti af tæplega sjötíu ökutækjum vegna þessa, aðallega í miðborginni. Þá ber sömuleiðis á því að fullfrískir einstaklingar nýti sér stæði sem eru sérmerkt fötluðum. Sem fyrr hvetur lögreglan ökumenn til að leggja löglega, m.a. til að þeir komist hjá útgjöldum en nú er 5000 kr. sekt vegna stöðubrots en gjaldið rennur í Bílastæðasjóð. Sé hins vegar lagt í stæði, sem eru sérmerkt fötluðum, þarf viðkomandi að greiða enn meira, eða 10000 kr.