4 Júlí 2003 12:00

Upplýsingar til fjölmiðla

4 júlí 2003.

Síðastliðna nótt var brotist inn í sprengiefnageymslu sem stendur í Hólmsheiðinni, norðan Suðurlandsvegar, rétt austan við Rauðavatn og stolið miklu magni af sprengiefni. Um er að ræða dynamit , bæði venjulegar túpur og mjóar leiðslur á rúllum, alls 245 kg. Ekki var stolið hvellhettum eða öðrum kveikibúnaði.

Sprengiefnið var í alls 9 pappakössum og tveimur plastpokum.

Lögreglan vill vekja athygli á að meðferð og notkun sprenigiefnis er ekki á færi annarra en þeirra sem til þess hafa tilskilin réttindi og búa yfir kunnáttu og þekkingu á meðferð þess. Meðferð annarra en þeirra sem með kunna er stórhættuleg.

Þeir sem kunna að hafa orðið varir við grunsamlegar mannaferðir við eða í nágrenni sprengiefnageymslunnar í gækvöldi og nótt eru beðnir um að gefa sig fram við lögreglu. Allir sem einhverjar upplýsingar geta veitt eða verða varir við óeðlilega meðhöndlun sprengiefnis eru sömuleiðis hvattir til að hafa þegar í stað samband við lögreglu.

Fhl

Hörður Jóhannesson / Karl Steinar Valsson