10 Ágúst 2010 12:00

Kanadísk hjón og dóttir þeirra urðu fyrir óskemmtilegri reynslu þegar þau heimsóttu Ísland fyrr í sumar. Brotist var inn í bíl þeirra þegar þau skoðuðu sig um í Reykjavík og úr honum var stolið ýmsum búnaði, m.a. bakpokum þeirra og GPS-tæki. Með hjálp heiðvirðra borgara tókst lögreglumönnum að endurheimta mest af búnaði þeirra og koma aftur í réttar hendur áður en Íslandsheimsókninni lauk. GPS-tækið var þar undanskilið en nú hefur líka tekist að koma því til skila en tækið var á dögunum sent til eigenda sinna í Kanada. Það fannst nokkru síðar við húsleit hjá manni sem hefur áður komið við sögu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Í framhaldinu var GPS-tækinu komið í munavörslu embættisins en þar mundi starfsmaður eftir innbrotinu í bíl Kanadamannanna og áttaði sig á því að um sama tæki var að ræða. Hann setti sig í samband við fólkið í Kanada og nú hefur GPS-tækið komist aftur í réttar hendur eins og áður sagði. Íslandsvinirnir voru mjög ánægðir með vinnubrögð lögreglunnar en vonandi verður næsta heimsókn þeirra hingað til lands áfallalaus.