14 Febrúar 2008 12:00

Fjármunabrotadeild lögreglunnar á höfuborgarsvæðinu hefur frá 7. febrúar sl. unnið að rannsókn stórfelldra fjársvika gagnvart nokkrum rafvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Málið hófst með handtöku 2 manna er voru að sækja vörupöntun í verslun þann 7. febrúar. Árverkni starfsmanna þar, og í annarri verslun til viðbótar, hafði leitt til þess að lögreglu hafði verið gert viðvart um hugsanlega tilraun til fjársvika . Við rannsókn málsins kom fljótlega í ljós að fleiri voru viðriðnir það og voru 3 aðrir aðilar handteknir í kjölfarið. Krafist var gæsluvarðhalds yfir fjórum þeirra og úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur þá í gæsluvarðhald til 13. febrúar.

Verðmæti þeirra vara sem reynt var að svíkja út nemur samtals um kr. 12.500.000 og af því tókst þeim að fá afhentar vörur í einni verslun fyrir um kr. 1.300.000. Þær vörur voru endurheimtar af lögreglu við húsleit á heimili eins sakborningsins. Þær vörur sem verið var að sækjast eftir við fjársvikin voru aðallega fartölvur, símar og annað því tengt.

Fyrir liggur að fjársvik þessi voru þaulskipulögð með löngum fyrirvara og m.a. voru söluaðilar blekktir með fölsuðum millifærslustaðfestingum úr heimabönkum sem sendar voru með tölvupósti sem breytt hafði verið með þeim hætti að hann virtist stafa frá banka.

Allir aðilar hafa játað aðild sína að málinu og hefur verið sleppt lausum.