7 Febrúar 2024 14:26

Síðastliðin sunnudag um kl. 17.20 var stórum klaka kastað af göngubrú yfir Miklubraut í Reykjavík og lenti hann á framrúðu bifreiðar, sem var ekið Miklubraut til austurs á móts við Rauðagerði. Varla þarf að taka fram að hér er um stórhættulegt athæfi að ræða enda geta ökumenn hæglega missi stjórnina við slíkt og þá með ófyrirséðum afleiðingum. Þrír strákar, mögulega á aldrinum 9-11 ára, voru á brúnni þegar þetta gerðist og sagði ökumaðurinn þá hafa kastað klakanum. Framrúðan var ónýt eftir þetta og þurfti að skipta henni út fyrir nýja með tilheyrandi kostnaði fyrir ökumanninn, sem var illa brugðið eftir uppákomuna.

Lögreglan biður þau sem kunna að búa yfir upplýsingum um málið að hafa samband í síma 444 1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gudmundur.petur@lrh.is Hér er t.d. átt við upptökur úr myndavélum bifreiða sem var ekið þarna um á sama tíma.

Foreldrar/forráðamenn eru einnig beðnir um að brýna fyrir börnum sínum þá miklu hættu sem skapast af svona háttalagi.