22 Apríl 2022 18:11

Strokufanginn, sem var handtekinn undir morgun, hefur verið færður í afplánun í fangelsið á  Hólmsheiði. Maðurinn var handtekinn í sumarbústað á höfuðborgarsvæðinu, en fimm aðrir voru jafnframt handteknir í tengslum við leitina. Fimmmenningarnir voru allir færðir á lögreglustöð til yfirheyrslu, en eru nú lausir úr haldi lögreglu. Rannsókn á meintum þætti þeirra beinist að því hvort brotamanni hafi verið veitt aðstoð við að losna undan handtöku.