11 Janúar 2012 12:00

Lögreglan fer stundum í útköll sem síðan reynast á misskilningi byggð. Dæmi um það er tilkynning sem barst um mann og var sagður vera hreyfingarlaus á bekk við suðurenda Reykjavíkurtjarnar. Lögreglan brást skjótt við enda allt eins víst að maðurinn væri í bráðri hættu. Á vettvangi var sannarlega að finna hreyfingarlausan mann á bekk og reyndist það vera hinn velþekkti Tómas Guðmundsson. Reyndar var það ekki Tómas sjálfur heldur stytta af þessu merkilega ljóðskáldi! Þegar þetta lá ljóst fyrir héldu lögreglumennirnir til annarra verka en það skal samt áréttað að það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna en einu sinni of sjaldan.

Í framhjáhlaupi má geta þess að styttan er eftir myndhöggvarann Höllu Gunnarsdóttur og að sl. föstudag voru liðin 111 ár frá fæðingu Tómasar, sem hefur oft verið kallaður Reykjavíkurskáldið. Tómas lést árið 1983 en hann er af mörgum talinn eitt af stórskáldum Íslendinga á síðustu öld.

Styttan af Tómasi Guðmundssyni ljóðskáldi.