7 Október 2018 00:46

Svikapóstur sem er látinn líta út fyrir að koma frá lögreglunni virðist vera að fara mjög víða þessa stundina. Við biðjum fólk að opna póstinn alls ekki, en hann kemur að sjálfsögðu ekki frá lögreglu. Slóðin, sem fólk er beðið að opna, er stafsett svipað og vefsvæði lögreglu, en er annar vefur sem eru mögulega sýktur af vírus.

Mikilvægt að sem flestir vari sig á þessu og opni alls ekki slóð eða viðhengi. Þeir sem hafa lent í að fara inn á síðuna eða hala niður gögnum – eru beðnir að slökkva strax á tölvum sínum. Lögreglan mun koma frekari upplýsingum áleiðis þegar þær koma.