23 Janúar 2020 13:53

Um síðustu helgi tókst svindlurum að koma nokkuð af fölsuðum evruseðlum í umferð. Aðferðin sem þeir beittu var að fara með háa seðla, 100 og 200 evrur og versla lítið eitt með þeim. Þeir herjuðu einna helst á sólarhringsverslanir, leiktækjasali og leigubíla. Þetta var hópur sem fór víða.

Svindlararnir fóru stuttar ferðir með leigubílum, eða keyptu sígarettur og smávörur en fengu svo afgang í íslenskum krónum. Þannig tókst þeim að verða sér úti um talsverða peninga.

Fljótt á litið eru þetta sambærilegir seðlar evrum. En þeir standast enga nánari skoðun ef menn vita að hverju á að leita. Svo virðist sem að svindlararnir hafi verið með búnt af fölskum seðlum sem hægt er að kaupa í Rússlandi.

Rannsókn lögreglu í þessu máli miðar vel áfram.

Hér fylgja myndir og skýringar á því hvernig má greina þessa seðla frá alvöru seðlum:

1. Vatnsmerki á að vera hér. 2. Öryggislína sem sést vel þegar að er gáð. 3. Á að vera þrívíð prentun.

1. СУВЕНИР (borið fram suvenir) merkir minjagripur. Þá er „R“ í EURO öfugt, „Я“ eða rússneski stafurinn „ya“. 2. Hér er svæði sem á að vera glasandi en er matt þar sem um einfalda prentun er að ræða.
Þetta á jafnt við um 100 og 200 evru seðlana sem hafa borist lögreglu.

2. Enn meira áberandi er að þar sem raðnúmer seðilsins á að vera þá er komið rússneskt letur: НЕ ЯBЛЯETCЯ ППATEЖHЬIM CPEДCTBOM sem merkir að þetta sé ekki alvöru seðill.