12 Desember 2008 12:00

Nokkuð ber á því að ökumenn hirði ekki um að skafa af bílrúðum en fyrir vikið setja hinir sömu sjálfa sig og aðra vegfarendur í hættu með takmörkuðu útsýni. Lögreglan hefur haft afskipti af mörgum ökumönnum fyrir áðurnefndar sakir í gegnum árin, m.a. við bæði leik- og grunnskóla en þar má lítið út af bregða í skammdeginu. Af þeim sökum biður lögreglan ökumenn að taka sig á og skafa af bílrúðum en með því er öryggi allra betur tryggt. Þetta er enn ítrekað hér því í snjókomunni á höfuðborgarsvæðinu í morgun voru margir ökumenn sem fóru af stað án þess að skafa almennilega af bílrúðunum.

Sá sem er trassi í þessum efnum á jafnframt yfir höfði sér 5 þúsund króna sekt en hún á við um hélaðar rúður á ökutæki. Um það má lesa í 59. gr. reglugerðar um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim.