3 Ágúst 2006 12:00

Tæplega þrítugur karlmaður var tekinn fyrir hraðakstur í Reykjavík í gær. Það er vart í frásögur færandi ef ekki væri fyrir þá staðreynd að þetta var í fimmta sinn á árinu sem viðkomandi er tekinn fyrir hraðakstur. Alls voru 27 ökumenn teknir fyrir hraðakstur í gær en í þeim hópi voru tveir bifhjólamenn. Í tilvikum þeirra var ekki um ofsaakstur að ræða þótt vissulega hafi tvímenningarnir ekið full glannalega.

Þrátt fyrir það sem hér er nefnt gekk umferðin bærilega fyrir sig. Þess skal getið að í gær var enginn ökumaður tekinn fyrir ölvunarakstur og er það sérstakt gleðiefni.