16 Júní 2022 16:20

Að venju verður ýmislegt um að vera í miðborg Reykjavíkur á 17. júní, en við minnum alla vegfarendur á að fara varlega og treystum því jafnframt að ökumenn leggi löglega þar sem annars staðar. Mörgum götum verður lokað vegna hátíðarhaldanna, líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd, en frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Þess má enn fremur geta að fjölskylduskemmtanir á 17. júní verða sömuleiðis haldnar í Grafarvogi, Breiðholti og á Klambratúni.

Heilmikið er líka um að vera á þjóðhátíðardaginn í öðrum sveitarfélögum í umdæminu og eru íbúar hvattir til að kynna sér dagskrána á heimasíðum þeirra.