15 Október 2008 12:00

Þýskur karlmaður á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í farbann til 26. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem er búsettur hérlendis og sat um tíma í gæsluvarðhaldi, er grunaður um aðild að fíkniefnamáli sem kom upp á Seyðisfirði í byrjun síðasta mánaðar. Þá fannst verulegt magn fíkniefna í bíl annars Þjóðverja eða u.þ.b. 20 kg af hassi og 1,7 kg af amfetamíni. Síðarnefndi maðurinn, sem er á sjötugsaldri, var í síðustu viku úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en það var gert á grundvelli almannahagsmuna.