20 Janúar 2010 12:00
Undanfarna mánuði hefur verið töluvert um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu og því vill lögreglan ítreka enn og aftur að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Tölvur, myndavélar, hljómflutningstæki og radarvarar eru meðal þess sem hafa löngum freistað þjófa en nú virðist sem svokölluð GPS-tæki séu efst á þessum lista. Fjölda GPS-tækja hefur verið stolið úr bílum á höfuðborgarsvæðinu upp á síðkastið og því vekur lögreglan á þessu sérstaka athygli. Í síðustu viku var t.d. tilkynnt um innbrot í 20 bíla í Breiðholti, Kópavogi og Mosfellsbæ en úr þeim flestum, ef ekki öllum, var stolið GPS-tækjum. Vegna þessa biður lögreglan eigendur eða umráðamenn ökutækja að skilja ekki verðmæti eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.
Þegar tilkynningar til lögreglu um innbrot í bíla eru skoðaðar kemur í ljós að þjófar láta til skarar skríða jafnt að degi sem nóttu. Og brotavettvangur getur ýmist verið á bifreiðastæði við verslunarmiðstöð, kvikmyndahús, sundlaug eða útivistarsvæði, svo nokkur dæmi séu tekin. Fólk getur sömuleiðis orðið fyrir á barðinu á þjófum hvort heldur bílnum er lagt utan við heimilið eða vinnustaðinn. Þetta er nauðsynlegt að hafa í huga en besta ráðið er auðvitað að skilja ekki verðmæti eftir í bílum.