31 Janúar 2007 12:00

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í Reykjavík í gær en hann er grunaður um innbrotstilraun í bílasölu í austurborginni. Á svipuðum slóðum var fjórum dekkjum og álfelgum stolið undan bíl sem jafnframt var rispaður á báðum hliðum svo eitthvað hefur gengið á þar. Þá var karlmaður um fertugt handtekinn í húsi í vesturhluta borgarinnar en innandyra var þýfi.